Hæhæ allir saman á Íslandi! Héðan úr danaveldi er nú ýmislegt að frétta! Nú er nú töluvert liðið síðan ég lagði það á mig að blogga síðast og því hefur nú ýmislegt drifið á daga mína síðan
Fyrst má nefna að ég er farin að tala mun meiri dönsku en það orsakast að því að ég er í áfanga sem heitir leikir og íþróttafræði, í þessum áfanga höfum við aðallega verið að læra leiki og sem sagt leika okkur og svo aftur að læra að kenna litlum börnum þessa leiki (Fjóla, ég skal kenna þér þá alla þegar ég kem heim, minnug þess hvað okkur vantaði fleiri leiki á síðustu önn í þjálfuninni!), hér við hliðina á skólanum er leikjagarður sem að sérhæfir sig í að taka á móti hópum og láta þá leika gamla leiki og þessi leikjagarður er í miklu samstarfi við skólann, leikjagarðurinn var síðan fenginn til að fara til Óðinsvé um síðustu helgi og halda uppi leikjum fyrir gesti og gangandi. Leikjagarðurinn fékk okkur, sem erum í þessum leikjaáfanga, til að koma með og hjálpa til
svolítið flókin útskýring á þessu ég veit! En í stuttu máli þá fórum við til Óðinsvé að leika við fólk og þar sem að Óðinsvé er í Danmörku töluðu allir bara dönsku! Þar af leiðandi neyddist ég eiginlega til að tala dönsku líka! Sérstaklega þar sem að við vorum oft að leika við börn, sem ótrúlegt en satt kunna ekki ensku (hvað er það!!!)
En þessi helgi var mjög skemtileg því að við fengum líka alveg hellings tíma til að litast um í Óðinsvé, skoða allt hitt sem var í gangi (því þetta var hluti af leikjahelgi), kíkja á næturlífið, nema þessir danir kunna ekki almennilega að djamma! Vilja bara sitja inni á einhverri krá og sötra bjór! Á meðan ég vil drekka eitthvað sterkara og dansa eins og vitleysingur!

Í Óðinsvé er verslunarkeðjan Irma með útibú og þar er hægt að fá íslenskt nammi, ekki í miklu úrvali en ég meina 3 tegundir eru 3 tegundir
Þessa helgi gerði ég líka svolítið sem að ég hélt í fyrstu að ég myndi aldrei þora að gera! Það var nefnilega í boði að láta sig síga niður eina byggingu! Og þessi bygging var hvorki meira né minna en 42 metrar að hæð! Á föstudeginum var ég nú ekki alveg viss um að ég leggði í þetta en svo nýtti ég daginn í að telja í mig kjark og svo þegar við ætluðum að fara seinni partinn var 2 klst bið svo við hættum við, svo komum við aftur daginn eftir og þá var ég alveg staðráðin í að láta slag standa og viti menn mér tókst það
það var lang erfiðast að leggja af stað, að láta sig síga fram yfir brúnina! En eftir það var þetta bara helvíti skemtilegt
(mun erfiðara líkamlega heldur en ég hélt að þetta væri!!)
(ég)
En helgina á undan, á meðan þið voruð öll blindfull í réttum og á réttarböllum, var svokölluð nemendahelgi, þá má fólk ráða hvort það fer heim eða er á staðnum og nokkrir nemendur bjóða sig fram til að skipuleggja skemtilega helgi! Þessa helgi var kvikmyndaþema, á laugardeginum drógum við okkur í hópa og hver hópur fékk ákveðna tegund af kvikmynd og ákveðna tökustaði! Minn hópur fékk hryllingsmynd! Svo fórum við bara af stað með stafrænu myndavélarnar okkar og tókum upp hryllingsmynd. Um kvöldið var síðan verðlaunahátíð þar sem bestu myndirnar í hverjum flokki voru verðlaunaðar (það voru þrír flokkar, hryllingsmyndir, gamanmyndir og dramamyndir og það voru þrjár myndir í hverjum flokki) Okkar mynd fékk by the way verðlaunin fyrir bestu hryllingsmyndina!
ég vil nú reyndar meina líka að ég hefði átt að fá verðlaun fyrir meistaraleik, sem sú manneskja sem dó fyrst! Ég held að enginn hafi leikið dauða manneskju eins vel
hehehehe
En þetta er ekki í eina skiptið sem að ég hef dáið síðan ég bloggaði síðast því að þessa vikuna er leikinn svokallaður killer game í skólanum! Í gærmorgun drógu allir miða með nafni einnar manneskju úr skólanum og annan miða með morðvopninu, svo átti að reyna að ná manneskjunni einni einhverstaðar og drepa hana með vopninu og ef að t.d. ég dræpi einhvern þá fengi ég persónuna sem hann átti að drepa og vopnið sem hann átti að nota! Ég var klárlega eins óheppinn og hægt er að vera í þessum leik því að ég dró Julie sem er fótboltakennarinn hérna og ég átti að drepa hana með ryksugu
í fyrsta lagi hef ég aldrei verið eitthvað að tala við hana og í öðru lagi getur maður ekki verið að dröslast um með ryksugu allan daginn í von um að hitta hana eina!!! En það skipti ekki miklu því að Andreas sem er nágranni minn hér réðist á mig í gær þegar ég kom heim frá því að skokka og drap migL að ég held með svitalyktareyði
svolítið sorglegur dauðdagi!
En ég held að ég láti þetta duga í bili enda búin að skrifa svo mikið að ég efast um að nokkur maður nenni að lesa þetta allt
verð greinilega að fara að blogga oftar svo ég hafi ekki frá svona miklu að segja:þ
Kveðja frá Danmörku
Lundsprúttlan
p.s. takk kærlega fyrir pakkan stelpur!!! Það var æði að opna hann! Reyndar ekki allir sáttir við lyktina af harðfiskinum en mér er nú nokk sama